Wednesday, May 25, 2005

 

Best

Hæbbsí!

Okei...

Best sándandi plata allra tíma heitir

Best sándandi lag allra tíma heitir

Allt við þetta lag! Yndislega clean sándið í byrjun með léttri lampabjögun sem leggur áherslu þegar hann slær örlítið fastar, yndislega gítarsólóið sem byrjar á því að hann slær eina nótu og hækkar svo í volumeinu á gítarnum með hann tengdan í gegnum fuzz faceinn ógurlega og eykur bjögunina og þykktina svo smoooth. Og svo enda kaflinn, þvílíkt yndislegt orgel brjálæði með rotary speaker madness. Þetta er best sándandi lag sem ég hef heyrt!

Hvað finnst þér vera best sándandi plata og best sándandi lag í heiminum?


Aðeins að effectabrettinu, þá er ég búinn að panta allt sjittið og er bara að bíða eftir að það komi. Eina sem er komið eru lamparnir og þeir sánda himneskt!

Annars var ég spurður í comment sjittinu hvað mér fyndist um digital modeling magnara a la Line6.
Persónulega þá eru þetta óneitanlega skemmtileg leikföng en ég myndi aldrei kaupa mér svona. Því miður þá bara sándar þetta ekki eins/jafn vel og hinn yndislegi lampamagnari. Ég væri alveg til í að eiga svona til að flippa með og auk þess sem að þetta er svosem ágætirs byrjendamagnari og ekki alltof dýrt. En þetta er alls ekki það sama og ekki jafn gott að lampamagnarar. Svona magnarar vinna ekki með volume takkanum á gítarnum þínum vel, virka hryllilega með effectum og eru þekktir fyrir svo kallað ear fatigue. Sem þýðir að þegar þú spilar mikið á svona magnara þá verður þú þreyttur í eyrunum af sándinu vegna mikilli hátíðni hljóða sem fylgja með og þú munt finna sjálfan þig verandi sífellt að fikta í eq á magnaranum að leita að betra sándi en það kemur seint.

En eins og ég segi líka, fínir byrjenda magnarar. Ég hata líka alls ekkert line6 eða neitt svoleiðis, digital stompbox modelarnir þeirra eru einhver sniðugasta uppfinning á effecta markaðnum lengi ef þú spyrð mig. Svo eru bæklingarnir frá þeim ýkt fyndnir!

En eitt enn... Ég á mér nokkrar uppáhalds íslenskar hljómsveitir. Graveslime eiga að mínu mati bestu plötu íslands fyrr og síðar, Roughness and Toughness. Sigurrós þykir mér frábærir sem og heill hellingur af "rokk.is böndum". En ein af þessum "ungu" hljómsveitum hefur alltaf verið í mjög sérstökum stað fyrir mér og þykir mér þetta efnilegasta band íslands af öllum. Ég veit ekki hvort þú sért sammála en allaveganna þetta band heitir Somniferum. Friðrik tók upp tónleika með þeim í febrúar og má finna þá hér: http://www.nfmh.is/~listafelag/Somniferum/ Þessi hljómsveit er svoooo góð að ég veit ekki hvað ég heiti. En því miður æfa þeir ekki mikið en það verður bara að hafa það. Ég hef líka átt þann mikla heiður að spila með tveimur af þeim frábæru herramönnum úr þessu bandi og var það yndislegt.

Ps. gítarinn er í gegnum minn magnara og bassaleikarinn og gítarleikarinn notuðu tunerinn minn fyrir þetta gigg!!!!! Ég mæli með því að þið hlustið á allt giggið beint í gegn.

Ta Ta

Wednesday, May 11, 2005

 

Update

Hæ hó sándáhugafólk!

Okei það hefur slatti af vatni runnið til sjávar síðan seinasta færsla var skrifuð. Ég er núna kominn með endanlega niðurstöðu sem að ég er afksaplega sáttur við. Einungis smávægilegar breytingar.

Ég hafði alltaf örlitlar áhyggjur af því að MoogerFooger Low Pass Filterinn væri kannski ekki alveg nógu fjölhæfur eða eins og maður myndi segja á enskunni a one trick pony. Ég hafði heyrt það einhversstaðar á guitargeek.com töflunni. Þannig að ég ákvað að reyna að finna mér filter sem væri fjölhæfari og nú hef ég fundið filter sem sagður er vera fjölhæfasti filterinn í bransanum. Ég kynni til sögunnar: Mod Max Filter. Ýkt partí. Milljón takkar. Hann getur gert brjáluð óhljóð, random arpeggiator hljóð a la Mars Volta og líka frábær venjuleg filter hljóð. Akkúrat það sem ég er að leita að. Ekki mikið dýrari en Mooginn og vegur upp á móti að ég þarf ekki expression pedala við hann. Brettið mun því líta svona út:



Reyndar er ég að pæla í að hafa Line6 DL-4 kannski fyrir framan Whammy pedalinn í signal röðinni til að geta fokkað í löngum delayum og þannig, en ég myndi samt hafa hann á sama stað,bara breyta snúru röðinni.

Ég er búinn að gera nákvæman verðlista fyrir þetta allt og lítur hann svona út:

Fulltone OCD = 165$
Mod Max Filter = 329$
Maneco Nanosampler = 377$
Moog EP-1 Exp pedall (ég valdi þennan af því að hann er ódýr og með langri snúru) = 40$
JJ Retube Kit = 106$
Godlyke Powerall = 40$
George L snúrur = 4,5$ x 55stk + 50ft snúra = 287$
True Bypass Strip = (hver sviss kostar 40$) = 274$
=
1618$
=
105.170kr

Ofan á þetta leggjast Shipping and Handling gjöld, virðisaukaskattur, ýmis gjöld og tollar. Semsagt partí. Ég vonandi slepp með 150.000 kall.

Ég ákvað að skipta um lampa í magnaranum mínum fyrir bob upptökur á okkar fyrstu plötu. Og ég hef heyrt frábæra hluti um JJ tubes auk þess sem þeir eru ekki of dýrir.

Mig langar að blogga örlítið um bypass mál. Ef þú ert Gunnar Jónsson eða eitthvað þá máttu bara sleppa að lesa þetta, þú veist þetta allt. En svona fyrir þá sem eru ekki alveg með þetta á hreinu þá er bypass semsagt þegar þú ert með slökkt á effectunum þínum. Þegar þú tengir þig í gegnum effect og slekkur á honum þá tapast alltaf örlítið af hljóðgæðum. Sérstaklega þegar þú ert með marga effecta og margar snúrur. Effectar eru með mis góð bypöss og þeir effectar sem hafa True Bypass leiða hljóðið algjörlega ósnert í gegn en aðrir lita hljóðið þitt.

Margir taka ekki mark á svona löguðu og segja að þetta sé bara tone snobb rugl en ég býð hverjum sem vill að koma upp í æfingahúsnæði og heyra muninn þegar þú tengir gítarinn beint í magnarann og svo í gegnum alla effectaflóruna. Pant ekki vera á bíl.

Þess vegna er ég að fá mér true bypass strip, inn í það set ég effectana mína sem eru með versta bypassið og ver þannig signalið mitt og hljóma því betur. Einnig gera góðar snúrur gæfu muninn og því ætla ég að fá mér George L snúrur. Einnig sker ég þær niður nákvæmlega eins langar og ég vil hafa þær og því sparast mikið vesen við of langar eða of stuttar snúrur.

anyways þá lítur þetta allt mjög vel út. Ég er að hugsa um að fara á bankalánið ef ég fæ staðfesta vinnu, sem ætti að gerast í næstu viku. Ef einhver er góður að smíða og hefur áhuga á því að smíða brettið með mér, gefið ykkur fram í kommenta sjittinu. Einnig, hvar er best að kaupa geðveikan franskan rennlás, til að festa effectana niður?

later

Sunday, May 08, 2005

 

Sumarinnkaup - niðurstaða

Ég er búinn að hugsa svo mikið um effectabrettið mitt upp á síðkastið og hvernig það mun líta út eftir sumarið. Ég vonast til þess að það verði svo gott þá að ég geti haldið mig við það þannig for life. Já það er samt ekki hægt en allaveganna lítur þetta út fyrir að sinna mínum þörfum í dáldinn tíma.

Svo ég byrji bara á byrjuninni, þá mun signallínan líta nákvæmlega svona út:

Gítar -
MXR 1979 DynaComp Compressor (alltaf í gangi) -
Death By Audio's Total Sonic Annihilation -
Fulltone OCD Overdrive -
ProCo Rat II Mods by www.robertkeeley.com
Boss GE-7 EQ -
Vox V847 wah wah -
Digitech Whammy IV

MoogerFooger Lowpass Filter m/expression pedal -
Ibanez FL-9 Flanger -
EHX Frequenzy Analyser Ring Mod -
MXR Blue Box -
Line6 DL-4 Digital Delay m/expression pedal -
Boss PN-2 Tremolo/Pan -
Boss DD-3 Digital Delay -
Maneco Nanosampler Loop Sampler -
Digitech Digiverb Reverb -
Tuner -
Magnari.

Okei... Skáletrað þýðir semsagt að það er inn í loopunni af Total Sonic Annihilation. En signal röðin er semsagt svona.

Ég ákvað að fá mér Fulltone OCD overdriveinn frekar en margt annað vegna þess að ég held að hann sé það sem ég er að leita að. Samkvæmt reviewum um hann þá er hann frekar opinn og ekki með of mikla miðju, sem hentar mér afar vel. Ég er að leita mér að transparent gaur og sándið sem ég hef í huga er létta bjögunin t.d. hjá White Stripes eða Jimi Hendrix. Einnig heillar auglýsingin mig, verðið á honum er ekki of mikið og síðast en ekki síst þá hljómar hann mjög vel í audio demounum. Þetta má finna hér.
Annar sem ég var mikið að pæla í er frá AnalogMan og heitir því fallega nafni King of Tone. En sökum þess að það er biðlisti í að fá hann og hann er dýrari og held ég með aðeins of mikla miðju fyrir mig þá valdi ég OCD. Lesa má um King Of Tone hér.

Okei þá er það skrýtin hljóð/stóra ring mod málið sem ég talaði um seinast. Ég ákvað að fá mér engan nýja Ring Mod. Ég fýla minn ótrúlega mikið og hann sinnir öllum þeim ring mod þörfum sem ég gæti nokkurn tíman haft. En hann sinnir ekki öllum skrýtnu hljóðum sem ég hef og þess vegna var ég mikið að pæla í að fá mér Moog Ring Moddin . En Matti sem er með mér í bob á þannig og ég vil alls ekki að sýran okkar fari að hljóma einsleitt og því ákvað ég að fá mér hann ekki. Í staðinn hef ég ákveðið að fá mér Moog LowPass Filter. Hann er bæði envelope filter sem mun opna fyrir mér nýja hljóðmöguleika og spilamöguleika þar sem að það er filter sem fylgir því hversu fast þú spilar á gítarinn þinn. Mjög vinsælt í fönki t.d. En einnig er hann filter og getur gert mikið af skrýtnum syntha sándum, sérstaklega get ég ímyndað mér í gegnum Total Sonic Annihiliaton. (Total Sonic Annihiliaton virkar þanni að hann fokkar í effectum sem eru í loopunni þegar ég kveiki á honum og gerir þá geðveikt flippaða og skrýtna. www.killerrockandroll.com/deathbyaudio). Ég hef hugsað mér þetta þannig að Frequenzy Analyserinn mun hér með sjá um öll skrýtnu "gonkin" og low pass filterinn mun vera með öll skrýtnu "bleepin". Ég mæli með tóndæmum af moog heimasíðunni sem ég linkaði á hér fyrir ofan. Sérstaklega tóndæmið "Exrteme MF-101". Það heillar mig afar mikið.

Maneco Nanosampler Loop samplerinn. Sjálfur Robin Guhtrie úr The Coctau Twins notar loop samplera frá Maneco. Ég bloggaði um þennan hérna aðeins neðar, tjékkið á því. Minni sérstaklega á lagið Maneco Symphony. Það er þarna neðst. Bara ein loopa tekin upp á þennan bad boy og með böns af reverbi. Ótrúlegt.

Ok svo ætla ég að kaupa mér expression pedal við Line6 delayinn minn. Það breytir svo ótrúlega miklu, ég get gert alveg þessi ótrúlegustu hljóð með honum núna. Ég skipa öllum sem notast við þennan delay (ef einhver hér...) að kaupa expression pedal strax!

Og svo þarf ég að láta gera við yndislega tremoloinn minn.

En svo ætla ég að gera eitt nýtt líka. Ég ætla að byggja mér nýtt bretti. Það verður á einni hæð, það verður ekki jafn breitt og hið gamla en það verður lengra. En ég ætla ekki að vera að fara að teygja mig eitthvað lengst til að kveikja á ákveðnum effectum. Því kynni ég til sögunnar True Bypass Strip!
Þetta mun í fyrsta lagi gera það að verkum af signalið mitt verður mun betra þar sem að effectar sem ég á sem eru með hryllilegt bypass munu fara í þetta og því mun ekkert signal tapast. Og svo get ég haft effectana út í horni en kveiki á þeim í strippinu sjálfu fremst. Það er dáldið erfitt að útskýra þetta í orðum en myndir útskýra þetta nokkuð á sjálfu sér...


Hér sjáum við hvernig brettið er tengt. Hann tengir hvern og einn effect í True Bypass strippið sem er svarta dótið neðst. Og svo hefur hann kveikt á öllum effectunum en svo þegar hann kveikir á viðeigandi stað á strippinu þá hleypir hann signali í gegnum effectinn. Ótrúlega einfalt og patent.

Ég ætla nú ekki að hafa alveg alla pedalana mína í þessu en ég ætla að hafa þessa:
Ibanez FL-9
MXR Blue Box
Boss GE-7
Moogerfooger low pass filter (þótt hann sé með frábæru bypassi þá ætla ég að hafa hann aftarlega á brettinu)
Digitech Whammy IV
Vox wah wah
Ehx Frequenzy Analyser.

Og eftir þriggja tíma vinnu í paint, þá mun brettið mitt líta eiginlega nákvæmlega svona út:


Boss pedalarnir þrír og digiverbinn upp í horni verða upphækkaðir sem og total sonic annihiliaton.

Ójá þetta verður gott.
Svo ætla ég að kaupa mér George L snúrur fyrir allt heila klabbið og þetta verður fullkomið. Eina sem ég þarf að spá er hvort ég eigi að skella mér á bankalán fyrir þessu öllu (150.000 ca) eða bíða langt fram á sumar til að eiga efni á þessu...

Ég krefst kommenta og allar tilögur eru vel þegnar með meiru.



Monday, April 25, 2005

 

Sumarinnkaup

Ég skammast mín fyrir hversu lélegur ég hef verið að uppfæra þetta blogg. Ég lofa betrun hér með!

Ég er að velta því fyrir mér hvernig ég á að ráðstafa peningunum mínum í sumar. Að sjálfsögðu í græjur, en hvaða græjur...

Ég ætla að fá mér Maneco Loop Samplerinn.

Svo ætla ég að fá mér annan Ring Modulator. Ring Modulator er uppáhaldstegundin mín af effectum. Þeir bæta við röddum bæði hærra og lægra í tónsviðinu sem ganga ekki upp hljómfræðilega heldur stærðfræðilega. Held ég. Allaveganna á leikmanna máli böns af súrum og brjáluðum geimveru og flipp hljóðum. Ég á nú þegar EHX Frequenzy Analyser sem er stórkostlega skemmtilegur, ódýr og einfaldur. Rosalega góður effect.

En mig vantar annan sem er með low frequenzy oscilliator eða LFO sem gerir það að verkum að hann getur breytt tíðnissveiflunum án þess að snúa neinum tökkum. Einnig hef ég áhuga á real time control eins og t.d. Expression pedal tengimöguleikum.

Svo virðist sem einungis séu til tveir effectar í heiminum sem uppfylla þessar kröfur. Annars vegar besti effect allra tíma (án þess að ég hafi einu sinni séð hann með berum augum) Lovetone Ring Stinger sem kostar á ebay u.þ.b. 1200 dollara sem myndi jafnast við svona 110.000 kall til íslands með sendingarkostnaði og viðeigindi gjöldum og sköttum. Sem er meira en ég get borgað.

Og svo hins vegar er það hinn frábæri MoogerFooger Ring Modulatorinn. Sem að virðist vera akkúrat það sem ég er að leita að, enda frábær effect í alla staði. En matti sem er með mér í hljómsveit á svoleiðis og því veit ég ekki hversu vel það myndi koma út ef við værum alltaf að gera sömu hljóðin. Þó svo að breiddin af hljóðum sem þessi elska gefur frá sér sé rosaleg þá veit ég ekki. Ef þú veist um annan ring mod sem ég gæti keypt mér þá máttu láta vita og það núna...

www.lovetone.co.uk
www.moogmusic.com

tjékkið á þeim og tóndæmunum. Þetta er aðeins of gott

Svo ætla ég að fá mér overdrive. Overdrive sumsé sér um létta bjögun og gefur sándinu manns svona lifandi tilfinningu og örlítið meiri rokk, svona fyrir þá sem ekki vita hvað þetta er fyrir.

Nokkrir koma til greina.
Fulltone Fulldrive 2 www.fulltone.com
Harmonic Perculator www.tonefrenzy.com
Zvex Super Hard On www.tonefrenzy.com
Aðrar tillögur? Mig sárvantar afskaplega lifandi og góðan overdrive.

Hvað annað finnst ykkur að ég gæti bætt við hjá mér eða skipt út?

langar líka í Mérn og svaka mikiannan fuzz, svaka kraftmikinð rokk.

Riggið mitt er svona akkúrat núna:
Vintage 1979 MXR DynaComp Compressor
ProCo Rat II Modified af Robert Keeley (www.robertkeeley.com)
Danelectro FabTone
Vox V847 Wah Wah
ProCo TurboRat
Digitech Whammy IV
Electro Harmonix Frequenzy Analyser
Dixon Analog Delay
MXR Blue Box
Vintage Ibanez FL-9
Death By Audio Total Sonic Annihiliaton (www.killerrockandroll.com/deathbyaudio)
Boss GE-7 EQ
Boss DD-3 Digital Delay
Line6 DL-4 Loop Sampler og Delay
Digitech Digiverb
Boss TU-2 Tuner

Ég lofa miklum og fjölbreyttum færslum á næstunni!

Gestabloggi líka!!

kveðja
kommentið í drasl



Wednesday, March 16, 2005

 

Loop samplerar

Hæbbs

Okei loop samplerar. Fyrir þá sem vita ekkert þá gera virka loop samplerar þannig að þú tekur upp litla búta á meðan þú spilar og svo geturu spilað þá endalaust og gert allsskonar flippaða og geðveika hljóðveggi með loopunni.

Núna er ég að nota Line6 DL-4 delayinn sem að er með innbyggðum loop sampler. Hann er ágætur, en ekki nógu góður. Ég get tekið upp fjórtán sekúndur í einu og spilað þær endalaust og tekið endalaust upp ofan á loopuna. Einnig get ég snúið henni við, þannig að hún spilist afturábak og hægt hana um helming og þá dettur hún niður um áttund líka. Það er flippað. En ástæðan fyrir því að ég ætla að fá mér nýjan loop sampler er af því að ég vill loop sampler sem er með "time" takka. Time takkinn gerir það að verkum að ég get stjórnað hraðanum á loopunni og tónhæðinni og gert þannig alveg mögnuð hljóð og hljóðveggi. My Bloody Valentine sándið byggist dáldið á þessu.

http://www.loopers-delight.com/

Hér má lesa allt sem hægt er að vita um loop samplera.

Ok ég er að velta því fyrir mér hvernig loop samplerar koma til greina.


Fyrir mér eru bara tveir í stöðunni. Annars vegar Digitech PDS 8000 sem að er með 8 sekúndur af tíma og var á sínum tíma notaður af engum öðrum en Kevin Shields, sem að er guð minn allra tíma. Hann er snar með time takka og er víst handhægur í notkun.


Hér eru nokkrir linkar um hann:
http://guitargeek.com/gearview/21/
harmony central
ebay
loopers delight

Okei. Það sem að ég er ekki viss með hann er að hann er einungis 8 sekúndur sem er í minni kantinum. En hann er ekki svo dýr af ebay, kannski svona 200$ sem að er kostur. En hann virðist samt frekar aumur við hliðina á hinum sem ég hef áhuga á.

Ég hér með kynni Maneco.
Maneco er gaur í úrugvæ sem að smíðar loop samplera út frá hans reynslu gagnvart þeim og hvað honum finnst vanta til að gera hinn fullkomna loopsampler. Og þeir eru frekar magnaðir.

hérna er heimasíðan hans:
http://manecolooper.tripod.com/

Okei. Sá sem ég vill er Nanosamplerinn. Hann kostar 347 dollara plús milljón í sendingarkostnað vegna þess að hann er frá úrúgvæ. En hann er ekkert smá flottur, með 40 sekúndur af tíma og yndislegum pitch bendum og æðisgengum hlutum.
Ok ég man þegar ég hlustaði fyrst á tóndæmin. Ég var alveg sáttur, en þetta var samt ekki það sem ég hafði alveg vonast eftir. Svo tók gaur sig til á guitargeek.com spjallinu og tók upp heilt lag sem er bara þessi loopsampler og böns af reverbi. Og ég sver það til guðs, ég svo kolféll fyrir honum þegar ég hlustaði á þetta. Þetta er svo ótrúlegt og þetta er svo snar það sem ég er að leita að held ég.


"Maneco Symphony was all done with my Maneco(hence the name). Basically... I recorded a simple guitar riff, put a reverb after it in the chain, and the entire song is done by pitchshifting ONE loop. I never changed it, just the pitch and the speed. The Maneco is a monster... a big beautiful monster. It was all done in one take... by chance... nothing was really planned. The only thing I really did besides messing with the pitch was trigger a massive reverb... and you can hear it pretty well."
Þetta sagði Clayton af spjallinu sjálfur þegar hann var spurður hvað hann notaði til að gera þetta lag og ég mana ykkur að tjékka á þessu.
Ég uploadaði þessu lagi hingað:
http://www.nfmh.is/~listafelag/finnur

Þetta er alveg frekar magnað og ég er að pæla í að skella mér á svona gaur í sumar. En ef þú hefur aðra tillögu að loop sampler eða ert eitthvað að pæla þá er það bara herra komment.

Einnig mæli ég með fyrir öllum um að fá sér loop sampler. Line6 dl-4 er geðveikur byrjenda loop sampler auk þess sem að það er magnaður delay. Loop samplerar gera þér kleift að gera þvílík hljóð, og eru algjör nauðsyn ef þú ætlar að gera eitthvað bara gítar efni, þeas. bara gítar efni sem er kúl. Loop samplerar eru ásamt ring modulerum uppáhalds effectarnir mínir.

okei

sorry hvað það leið langt á milli pósta, ég var lengi að finna þetta lag á ný. En vonandi mun ég vera duglegri á næstunni... fyrir utan í næstu viku þar sem ég verð í danmörku...

Sunday, March 13, 2005

 

Sánd

Jæja þetta er fyrsta færslan mín um sánd. Ég er mikið búinn að hlakka til að stofna þetta blogg en ég er búinn að vera hræddur við það hvernig ég á að byrja. En nú byrja ég bara.

slóðin er ahhsand.blogspot.com sem er viðbjóður en ef þú breytir því í ahhsánd þá er það frekar næs. Ég valdi þennan titil einfaldlega af því að sánd er svo geðveikt að ahhhh það er svo næs.

Ok byrja bara stutt. Ég uppgvötaði flottustu Flanger notkun ever, á íslenskri plötu sem ég uppgvötaði um daginn. Þessi plata heitir Roughness & Toughness og er með hljómsveitinni Graveslime. Í lagi númer 10 sem heitir american sleeper kemur svona 5 sekúndna kafli með fokking flottasta flanger í heimi og það gjörsamlega gerir lagið. Lagið er held ég 11mín eða eitthvað en þetta er svo ótrúlegt bara. Hvernig flangerinn svoleiðis tekur í palm muteið eftir löngu uppbygginguna. Flanger er nefnilega frekar geðveikur í svona uppbyggingar og þannig.

Ok þetta er ekki spennandi nema þú heyrir þetta.
http://www.nfmh.is/~myrkur/Roughness%20and%20Toughness/

Þetta er semsagt þriðji neðsti fællinn. Ok þú verður að hlusta á þetta og einbeita þér geðveikt vel svo þetta fari ekki fram hjá þér. Þetta varir frá 8:28-8:31.En það er mjög mikilvægt að þú hlustir á allt lagið til þess að ná þessu alveg. Úff þetta er major næs. Lagið er líka náttúrulega frekar geðveikt. Stuttu eftir þetta kemur líka frekar magnað sóló.

Allaveganna, ég er bara að byrja núna, en næst kemur feitt djúp færsla. Ég er semsagt að hugsa um að hafa þetta svona daglegar hugleiðingar mínar um sánd en líka kannski að svona svara fyrirspurnum, eins og gunnar og allsbert gerðu á kommentakerfinu mínu á finngaur.blogspot.com
Og svo bendi ég á óendanlega uppsprettu upplýsinga; www.guitargeek.com/chat

En já. More to come!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?