Wednesday, May 25, 2005

 

Best

Hæbbsí!

Okei...

Best sándandi plata allra tíma heitir

Best sándandi lag allra tíma heitir

Allt við þetta lag! Yndislega clean sándið í byrjun með léttri lampabjögun sem leggur áherslu þegar hann slær örlítið fastar, yndislega gítarsólóið sem byrjar á því að hann slær eina nótu og hækkar svo í volumeinu á gítarnum með hann tengdan í gegnum fuzz faceinn ógurlega og eykur bjögunina og þykktina svo smoooth. Og svo enda kaflinn, þvílíkt yndislegt orgel brjálæði með rotary speaker madness. Þetta er best sándandi lag sem ég hef heyrt!

Hvað finnst þér vera best sándandi plata og best sándandi lag í heiminum?


Aðeins að effectabrettinu, þá er ég búinn að panta allt sjittið og er bara að bíða eftir að það komi. Eina sem er komið eru lamparnir og þeir sánda himneskt!

Annars var ég spurður í comment sjittinu hvað mér fyndist um digital modeling magnara a la Line6.
Persónulega þá eru þetta óneitanlega skemmtileg leikföng en ég myndi aldrei kaupa mér svona. Því miður þá bara sándar þetta ekki eins/jafn vel og hinn yndislegi lampamagnari. Ég væri alveg til í að eiga svona til að flippa með og auk þess sem að þetta er svosem ágætirs byrjendamagnari og ekki alltof dýrt. En þetta er alls ekki það sama og ekki jafn gott að lampamagnarar. Svona magnarar vinna ekki með volume takkanum á gítarnum þínum vel, virka hryllilega með effectum og eru þekktir fyrir svo kallað ear fatigue. Sem þýðir að þegar þú spilar mikið á svona magnara þá verður þú þreyttur í eyrunum af sándinu vegna mikilli hátíðni hljóða sem fylgja með og þú munt finna sjálfan þig verandi sífellt að fikta í eq á magnaranum að leita að betra sándi en það kemur seint.

En eins og ég segi líka, fínir byrjenda magnarar. Ég hata líka alls ekkert line6 eða neitt svoleiðis, digital stompbox modelarnir þeirra eru einhver sniðugasta uppfinning á effecta markaðnum lengi ef þú spyrð mig. Svo eru bæklingarnir frá þeim ýkt fyndnir!

En eitt enn... Ég á mér nokkrar uppáhalds íslenskar hljómsveitir. Graveslime eiga að mínu mati bestu plötu íslands fyrr og síðar, Roughness and Toughness. Sigurrós þykir mér frábærir sem og heill hellingur af "rokk.is böndum". En ein af þessum "ungu" hljómsveitum hefur alltaf verið í mjög sérstökum stað fyrir mér og þykir mér þetta efnilegasta band íslands af öllum. Ég veit ekki hvort þú sért sammála en allaveganna þetta band heitir Somniferum. Friðrik tók upp tónleika með þeim í febrúar og má finna þá hér: http://www.nfmh.is/~listafelag/Somniferum/ Þessi hljómsveit er svoooo góð að ég veit ekki hvað ég heiti. En því miður æfa þeir ekki mikið en það verður bara að hafa það. Ég hef líka átt þann mikla heiður að spila með tveimur af þeim frábæru herramönnum úr þessu bandi og var það yndislegt.

Ps. gítarinn er í gegnum minn magnara og bassaleikarinn og gítarleikarinn notuðu tunerinn minn fyrir þetta gigg!!!!! Ég mæli með því að þið hlustið á allt giggið beint í gegn.

Ta Ta
|

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?