Wednesday, March 16, 2005
Loop samplerar
Hæbbs
Okei loop samplerar. Fyrir þá sem vita ekkert þá gera virka loop samplerar þannig að þú tekur upp litla búta á meðan þú spilar og svo geturu spilað þá endalaust og gert allsskonar flippaða og geðveika hljóðveggi með loopunni.
Núna er ég að nota Line6 DL-4 delayinn sem að er með innbyggðum loop sampler. Hann er ágætur, en ekki nógu góður. Ég get tekið upp fjórtán sekúndur í einu og spilað þær endalaust og tekið endalaust upp ofan á loopuna. Einnig get ég snúið henni við, þannig að hún spilist afturábak og hægt hana um helming og þá dettur hún niður um áttund líka. Það er flippað. En ástæðan fyrir því að ég ætla að fá mér nýjan loop sampler er af því að ég vill loop sampler sem er með "time" takka. Time takkinn gerir það að verkum að ég get stjórnað hraðanum á loopunni og tónhæðinni og gert þannig alveg mögnuð hljóð og hljóðveggi. My Bloody Valentine sándið byggist dáldið á þessu.
http://www.loopers-delight.com/
Hér má lesa allt sem hægt er að vita um loop samplera.
Ok ég er að velta því fyrir mér hvernig loop samplerar koma til greina.
Fyrir mér eru bara tveir í stöðunni. Annars vegar Digitech PDS 8000 sem að er með 8 sekúndur af tíma og var á sínum tíma notaður af engum öðrum en Kevin Shields, sem að er guð minn allra tíma. Hann er snar með time takka og er víst handhægur í notkun.

Hér eru nokkrir linkar um hann:
http://guitargeek.com/gearview/21/
harmony central
ebay
loopers delight
Okei. Það sem að ég er ekki viss með hann er að hann er einungis 8 sekúndur sem er í minni kantinum. En hann er ekki svo dýr af ebay, kannski svona 200$ sem að er kostur. En hann virðist samt frekar aumur við hliðina á hinum sem ég hef áhuga á.
Ég hér með kynni Maneco.
Maneco er gaur í úrugvæ sem að smíðar loop samplera út frá hans reynslu gagnvart þeim og hvað honum finnst vanta til að gera hinn fullkomna loopsampler. Og þeir eru frekar magnaðir.
hérna er heimasíðan hans:
http://manecolooper.tripod.com/
Okei. Sá sem ég vill er Nanosamplerinn. Hann kostar 347 dollara plús milljón í sendingarkostnað vegna þess að hann er frá úrúgvæ. En hann er ekkert smá flottur, með 40 sekúndur af tíma og yndislegum pitch bendum og æðisgengum hlutum.
Ok ég man þegar ég hlustaði fyrst á tóndæmin. Ég var alveg sáttur, en þetta var samt ekki það sem ég hafði alveg vonast eftir. Svo tók gaur sig til á guitargeek.com spjallinu og tók upp heilt lag sem er bara þessi loopsampler og böns af reverbi. Og ég sver það til guðs, ég svo kolféll fyrir honum þegar ég hlustaði á þetta. Þetta er svo ótrúlegt og þetta er svo snar það sem ég er að leita að held ég.
"Maneco Symphony was all done with my Maneco(hence the name). Basically... I recorded a simple guitar riff, put a reverb after it in the chain, and the entire song is done by pitchshifting ONE loop. I never changed it, just the pitch and the speed. The Maneco is a monster... a big beautiful monster. It was all done in one take... by chance... nothing was really planned. The only thing I really did besides messing with the pitch was trigger a massive reverb... and you can hear it pretty well."
Þetta sagði Clayton af spjallinu sjálfur þegar hann var spurður hvað hann notaði til að gera þetta lag og ég mana ykkur að tjékka á þessu.
Ég uploadaði þessu lagi hingað:
http://www.nfmh.is/~listafelag/finnur
Þetta er alveg frekar magnað og ég er að pæla í að skella mér á svona gaur í sumar. En ef þú hefur aðra tillögu að loop sampler eða ert eitthvað að pæla þá er það bara herra komment.
Einnig mæli ég með fyrir öllum um að fá sér loop sampler. Line6 dl-4 er geðveikur byrjenda loop sampler auk þess sem að það er magnaður delay. Loop samplerar gera þér kleift að gera þvílík hljóð, og eru algjör nauðsyn ef þú ætlar að gera eitthvað bara gítar efni, þeas. bara gítar efni sem er kúl. Loop samplerar eru ásamt ring modulerum uppáhalds effectarnir mínir.
okei
sorry hvað það leið langt á milli pósta, ég var lengi að finna þetta lag á ný. En vonandi mun ég vera duglegri á næstunni... fyrir utan í næstu viku þar sem ég verð í danmörku...

Sunday, March 13, 2005
Sánd
Jæja þetta er fyrsta færslan mín um sánd. Ég er mikið búinn að hlakka til að stofna þetta blogg en ég er búinn að vera hræddur við það hvernig ég á að byrja. En nú byrja ég bara.
slóðin er ahhsand.blogspot.com sem er viðbjóður en ef þú breytir því í ahhsánd þá er það frekar næs. Ég valdi þennan titil einfaldlega af því að sánd er svo geðveikt að ahhhh það er svo næs.
Ok byrja bara stutt. Ég uppgvötaði flottustu Flanger notkun ever, á íslenskri plötu sem ég uppgvötaði um daginn. Þessi plata heitir Roughness & Toughness og er með hljómsveitinni Graveslime. Í lagi númer 10 sem heitir american sleeper kemur svona 5 sekúndna kafli með fokking flottasta flanger í heimi og það gjörsamlega gerir lagið. Lagið er held ég 11mín eða eitthvað en þetta er svo ótrúlegt bara. Hvernig flangerinn svoleiðis tekur í palm muteið eftir löngu uppbygginguna. Flanger er nefnilega frekar geðveikur í svona uppbyggingar og þannig.
Ok þetta er ekki spennandi nema þú heyrir þetta.
http://www.nfmh.is/~myrkur/Roughness%20and%20Toughness/
Þetta er semsagt þriðji neðsti fællinn. Ok þú verður að hlusta á þetta og einbeita þér geðveikt vel svo þetta fari ekki fram hjá þér. Þetta varir frá 8:28-8:31.En það er mjög mikilvægt að þú hlustir á allt lagið til þess að ná þessu alveg. Úff þetta er major næs. Lagið er líka náttúrulega frekar geðveikt. Stuttu eftir þetta kemur líka frekar magnað sóló.
Allaveganna, ég er bara að byrja núna, en næst kemur feitt djúp færsla. Ég er semsagt að hugsa um að hafa þetta svona daglegar hugleiðingar mínar um sánd en líka kannski að svona svara fyrirspurnum, eins og gunnar og allsbert gerðu á kommentakerfinu mínu á finngaur.blogspot.com
Og svo bendi ég á óendanlega uppsprettu upplýsinga; www.guitargeek.com/chat
En já. More to come!