Sunday, March 13, 2005

 

Sánd

Jæja þetta er fyrsta færslan mín um sánd. Ég er mikið búinn að hlakka til að stofna þetta blogg en ég er búinn að vera hræddur við það hvernig ég á að byrja. En nú byrja ég bara.

slóðin er ahhsand.blogspot.com sem er viðbjóður en ef þú breytir því í ahhsánd þá er það frekar næs. Ég valdi þennan titil einfaldlega af því að sánd er svo geðveikt að ahhhh það er svo næs.

Ok byrja bara stutt. Ég uppgvötaði flottustu Flanger notkun ever, á íslenskri plötu sem ég uppgvötaði um daginn. Þessi plata heitir Roughness & Toughness og er með hljómsveitinni Graveslime. Í lagi númer 10 sem heitir american sleeper kemur svona 5 sekúndna kafli með fokking flottasta flanger í heimi og það gjörsamlega gerir lagið. Lagið er held ég 11mín eða eitthvað en þetta er svo ótrúlegt bara. Hvernig flangerinn svoleiðis tekur í palm muteið eftir löngu uppbygginguna. Flanger er nefnilega frekar geðveikur í svona uppbyggingar og þannig.

Ok þetta er ekki spennandi nema þú heyrir þetta.
http://www.nfmh.is/~myrkur/Roughness%20and%20Toughness/

Þetta er semsagt þriðji neðsti fællinn. Ok þú verður að hlusta á þetta og einbeita þér geðveikt vel svo þetta fari ekki fram hjá þér. Þetta varir frá 8:28-8:31.En það er mjög mikilvægt að þú hlustir á allt lagið til þess að ná þessu alveg. Úff þetta er major næs. Lagið er líka náttúrulega frekar geðveikt. Stuttu eftir þetta kemur líka frekar magnað sóló.

Allaveganna, ég er bara að byrja núna, en næst kemur feitt djúp færsla. Ég er semsagt að hugsa um að hafa þetta svona daglegar hugleiðingar mínar um sánd en líka kannski að svona svara fyrirspurnum, eins og gunnar og allsbert gerðu á kommentakerfinu mínu á finngaur.blogspot.com
Og svo bendi ég á óendanlega uppsprettu upplýsinga; www.guitargeek.com/chat

En já. More to come!
|

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?